Húðin - staðreyndir

Herbalife - Húðin - staðreyndirTil húðarinnar má rekja 16% líkamsþyngdar og hún er því stærsta líffæri líkamans. Hún er varnarbrynjan hans.

Húð manna er gerð úr þremur lögum, en þau eru:

• Húðþekja (ysta lagið)

• Leðurhúð (miðlagið).

• Húðbeður (innsta lagið).

Leðurhúðin inniheldur fitu- og svitakirtla, blóðæðar, skynfæri og taugar, en stærri æðar og taugar liggja um húðbeðinn.

Húðin er vísindalega uppbyggð til að gegna hlutverki sínu en hún er jafnframt augljósasta vísbendingin um aldur fólks. Þess vegna skiptir umönnun húðarinnar ekki einungis höfuðmáli heldur er hún einnig grundvöllur mikilla viðskipta. Allir, bæði konur og karlar, vilja halda unglegu og frísklegu útliti sínu eins lengi og kostur er.
Fólk á þrítugsaldri gefur húðumönnun gjarnan ekki eins mikinn gaum og eldra fólk. Hins vegar er best að temja sér góðar umönnunarvenjur eins fljótt og kostur er því það er á yngri árum sem vörur sem vinna gegn aldursmerkjum skila mestum árangri. Þegar fólk er komið á miðjan fertugsaldurinn snýst málið alfarið um að halda í horfinu.

Aldursferli húðarinnar stafar af því að náttúruleg starfsemi frumnanna skerðist smátt og smátt og veldur því að húðin tapar með tímanum hæfileika sínum til þess að varðveita raka. Hún verður ekki eins þétt í sér og stinn. Afleiðingin er sú að fínar línur og hrukkur fara að birtast.

Strax frá miðjum þrítugsaldri tekur húðin að tapa allt að 1,5% af kollageni sínu árlega.
Með notkun ýmissa snyrtivara sem miða að því að endurnýja þetta glataða kollagen er unnt að hjálpa húðinni að bæta, endurheimta og jafnvel varðveita óskertan teygjanleika sinn og draga þannig á náttúrulegan hátt úr fínum línum og hrukkum.

Augun, munnurinn, hálsinn og bringan eru yfirleitt sérstaklega viðkvæm fyrir aldursmerkjum, en samt huga margir ekki nægilega vel að þessum svæðum þegar þeir sinna húðinni.

NouriFusion® eða Radiant C™ vöruúrvalið frá Herbalife leggur grunninn að árangursríkri umönnun húðarinnar. Um er að ræða ómissandi undirstöðuvörur til að hreinsa og styrkja húðina daglega.

Við val á rakakremi, og þá sérstaklega fyrir þá sem vilja ráðast hnitmiðað gegn aldursmerkjum, er hins vegar tilvalið að prófa Skin Activator™ vöruúrvalið frá Herbalife.

 
pg - node/58