Herbalife Aloe Vera

Í yfir 6.000 ár hefur Aloe Vera jurtin verið þekkt fyrir læknandi og græðandi eiginleika sína. Þetta er einhver elsta jurtin sem notuð hefur verið í náttúrulækningum og bæði má bera hana á sig útvortis og taka hana inn. Lauf Aloe Vera jurtarinnar innihalda hlaup sem er auðugt af vítamínum, snefilefnum og lípíðamínósýrum. Rakamettandi innihaldsefni Aloe Vera mýkja og slétta húðina og undirbúa hana á ákjósanlegasta hátt fyrir förðun. Herbalife hagnýtir sér alla kosti Aloe Vera jurtarinnar í snyrtivörum sínum fyrir húðina og hárið.

HerbalAloe vörurnar frá Herbalife.

HerbalAloe rakagefandi sjampó og næring fyrir þurrt hár hjálpa hárinu að endurheimta rakann og gera við slit af völdum hárgreiðslu og umhverfisálags. Eftir þvott er unnt að móta greiðsluna með HerbalAloe hárúðanum sem heldur henni allan daginn. Nærandi húðsápa til daglegra nota, sem unnin er úr heilum Aloe-laufum, rakamettar húðina um leið og hún hreinsar hana á mildan hátt. Aloe-gelið og úðinn frá Herbalife vinna gegn húðertingu og eru mýkjandi fyrir brennda húð. HerbalAloe vörurnar frá Herbalife smjúga á örskotsstundu inn í vefina og eru hraðvirkar til þess að sefa húðina og lina óþægindi.

Dagleg hreinsun með HerbalAloe

Til þess að hreinsa húðina daglega skal nota Aloe-húðsápuna, sem gædd er mildum ilmi, og bera í kjölfarið á sig Aloe-húðmjólkina fyrir hendur og líkama. Þessar vörur eru léttar og fitulausar og gera húðina silkimjúka. Fyrir mjög þurra húð er gott að taka með sér Aloe-handáburðinn þegar verið er á ferðinni.

 
pg - node/49