Nourifusion Herbalife
Vísindalegum aðferðum var beitt við þróun á NouriFusion® vörunum til þess að tryggja að þær uppfylli þarfir húðar unga fólksins. Allar vörurnar í NouriFusion úrvalinu innihalda einstaka fjölvítamínblöndu með A-, C- og E-vítamíni til þess að gera hörundið áferðarfallegt og geislandi.
Hvaða gagn gera A-, C- og E-vítamín fyrir húðina?
A-vítamín rakamettar húðina, hjálpar frumunum að endurnýja sig og á þátt í að halda ótímabærum aldursmerkjum í lágmarki.
C-vítamín örvar kollagenframleiðslu, temprar húðlit og styður eðlilegar varnir húðarinnar.
E-vítamín verndar húðina gegn þurrki og gerir hana mjúka og slétta áferðar.
Hver og einn getur fundið réttu vörurnar til daglegrar húðumönnunar.
Fyrsta skrefið í daglegri húðumönnun er ávallt hreinsun. Þegar búið er að hreinsa húðina með hreinsimjólk eða geli skal nota andlitsvatn til þess að fjarlægja óhreinindi, fá svitaholurnar til að dragast saman og gera húðina stinnari. Síðasta skrefið í daglegri húðumönnun er svo rakakrem sem er sérvalið miðað við þarfir húðarinnar. Í úrvali Herbalife af einkaleyfisbundnum NouriFusion® snyrtivörum er boðið upp á tvo mismunandi grunnpakka − annan fyrir eðlilega til þurra húð og hinn fyrir eðlilega til feita húð. Í NouriFusion® vöruúrvalinu frá Herbalife er einnig að finna bráðnauðsynlegar vörur fyrir viðkvæmt augnsvæðið, þ.m.t. NouriFusion® augngel sem frískar augun og dregur úr þrota. Fyrir þurra eða viðkvæma húð hefur Herbalife einnig á boðstólum gjöfult augnkrem til þess að rakametta augnsvæðið meðan sofið er.
Til viðbótar við daglega umönnun ber að stefna að því að nota andlitsmaska tvisvar til þrisvar í viku. Hreinsimaskinn frá Herbalife hjálpar til við að fjarlægja yfirborðsolíu og draga úr ýmsum húðlýtum. Hann stuðlar einnig að því að svitaholurnar dragist saman og frískar húðina.
NouriFusion® frá Herbalife − allt sem unga fólkið þarf til að annast um húðina.