Radiant C Herbalife

Áferðarfalleg og geislandi húð gefur til kynna góða líðan og heilnæman lífsstíl. Hjá mörgum verður húðin hins vegar fyrir barðinu á streituríkum lifnaðarháttum, óheilnæmri fæðu og umhverfisþáttum á borð við mengun. Allir þessir þættir taka sinn toll af viðkvæmri húðinni og gera hana dauflega og skaddaða.

Auktu útgeislun húðarinnar

Endurnærðu hörundið með hágæðavörum úr vítamínríka Radiant C vöruúrvalinu frá Herbalife. Frískandi efnablöndurnar hjálpa húðinni að varðveita útgeislun sína.

Svalandi og frískandi fyrir húðina 

Face Quencher frá Herbalife er handhægur úði sem er bæði svalandi og frískandi fyrir húðina. Tilvalið er að taka hann með sér í líkamsþjálfun.

Viðgerðir og varnir húðarinnar

Líkamleg áreynsla eða ytri þættir á borð við útfjólubláa geisla, sígarettureyk eða skordýraeitur geta stuðlað að myndun sindurefna. Sindurefni í líkamanum geta skaðað frumurnar og hraðað öldrunarferlinu. Andoxunarefni geta haldið í lágmarki neikvæðum áhrifum sindurefna og frestað öldrunarferlinu. Í snyrtivöruúrvali Herbalife er að finna fitulausa húðmjólk fyrir líkamann með miðlungssterkri sólarvörn, SPF 15. Hún er auðug af andoxunarefnum og hjálpar til við að vernda húðina. Gott er að hreinsa andlitið með mildu skrúbbkremi til daglegra nota, Daily Facial Scrub Cleanser − sem er mjúkt skrúbbgel með daufum sítrónuilmi. Til þess að styrkja húðina og gera hana dúnmjúka og slétta skal nota Daily Skin Booster.

Nú getur þú öðlast geislandi húð með Radiant C snyrtivörunum frá Herbalife.

 
pg - node/48