Sól Vernd

Herbalife Ráðleggingar um sólarvörnVarnarbrynjan okkar gegn mengandi efnum og öðrum umhverfisþáttum er húðin. Af þeirri ástæðu skiptir höfuðmáli að nota árangursríkar snyrtivörur til að vernda húðina gegn skaðlegum áhrifum sólarinnar.

Flest viljum við að húðin sé geislandi, hraustleg og hæfilega útitekin. En hvað erum við að gera húðinni þegar við sitjum í sólinni og böðum okkur í hlýjum geislum hennar.

Stutt vera í sólinni getur verið gagnleg fyrir húðina. Útfjólubláir geislar sólarinnar geta örvað framleiðslu á D-vítamíni sem getur hjálpað til við frásog kalks úr meltingarveginum og stuðlað þannig að heilbrigðum beinum.

Ef dvalið er langdvölum í sólinni, regluleg sólböð eru stunduð og þá ekki síst ef notaðir eru ljósabekkir getur það haft alvarleg áhrif á húðina, svo ekki sé minnst á alvarlegar afleiðingar fyrir heilsuna. Margir sjá jákvæð áhrif sólarinnar nánast strax, en ekki er víst að neikvæðu áhrifin séu sýnileg þegar í stað.

Ef ekki er notaður réttur styrkur af sólarvörn getur húðin t.d. brunnið afar auðveldlega og valdið alvarlegum óþægindum.

Regluleg húðumönnun ásamt því að bera hæfilega sterka sólarvörn og andoxunarefni á húðina getur hins vegar gefið þá vernd sem við þörfnumst í sólinni. Jafnframt hefur sýnt sig að þannig má halda í lágmarki skaðlegum áhrifum umhverfisins á húðina.

Vegna greinargóðra varnaðarorða um heilsufar undanfarið hefur fólk í æ meiri mæli orðið meðvitað um kosti þess að nota sólarvörn, en samt telja sumir ennþá að aðeins þurfi að vernda húðina í sterku sólarljósi eins og um hádegisbil í Miðjarðarhafslöndunum.

Sannleikurinn er sá að veðrið er orðið óútreiknanlegra og húðin þarfnast verndar allt árið, hvenær sem hún kemst í tæri við sólina. Hér á eftir fara nokkur einföld atriði sem huga þarf að til að tryggja að húðin fái þá sólarvörn sem hún þarf.

Hollráð um sólarvörn:
• Notaðu daglega sólarvörn, að minnsta 15 í styrkleika, meira að segja í kaldari mánuðum.
• Mundu að bera aftur á þig sólarvörn eftir þörfum yfir daginn, einkum eftir líkamsáreynslu á borð við sund.
• Takmarkaðu veruna í sólinni, einkum um hádegisbilið.
• Gakktu í hlífðarfötum, notaðu sólgleraugu með vörn gegn útfjólubláum geislum og hatta með breiðum börðum.

 
pg - node/56