Skin Activator Herbalife

Húðin er stærsta líffæri líkamans og endurspeglar afar vel hvort lífsstíllinn er heilnæmur. Með aldrinum verður æ mikilvægara að hugsa vel um húðina með hágæðasnyrtivörum sem sérvaldar eru miðað við þarfir og húðgerð hvers og eins.

Hvað er kollagen?

Kollagen er náttúrulegt prótein sem er að finna í líkamanum og er mikilvægt til þess að varðveita heilsu húðarinnar. Með aldrinum minnkar kollagenmagn í húðinni. Húðin missir þá teygjanleika sinn og hrukkur verða sýnilegar.

Forvarnir gegn ótímabærri öldrun húðarinnar

Í snyrtivöruúrvalinu frá Herbalife er að finna vörur sem þróaðar hafa verið sérstaklega til þess að hjálpa til við að auka kollagenmagnið í húðinni. Skin Activator™ snyrtivörurnar frá Herbalife innihalda úrvalsgóða efnablöndu með amínóglúkósa til þess að örva framleiðslu kollagens. Fyrir utan að auka kollagenframleiðslu rakamettar efnablandan húðina, gerir hana stinnari og verndar hana. Skin Activator™ vöruúrvalið frá Herbalife felst í fimm vörum til þess að annast sérstaklega um þau húðsvæði sem eru einstaklega viðkvæm fyrir öldrunarferlinu. Í boði eru vörur til daglegra nota kvölds og morgna og auk þess sérstakt krem fyrir augun, varirnar og háls- og bringusvæðið. Eftir nokkurra vikna notkun sést munur og því lengur sem vörurnar eru notaðar því meiri verður munurinn.

 
pg - node/47